Greiðslufyrirkomulag
Tekið er á móti greiðslum með kreditkortum í gegnum öruggt greiðslusvæði þar sem kortanúmer eru dulkóðuð. Tekið skal fram að Active.is geymir ekki né tekur á móti kortanúmerum, allar slíkar upplýsingar fara í gegnum öruggt greiðslusvæði hjá viðurkenndum þjónustuaðila. Einnig er hægt borga með því að millifæra í gegnum banka/heimabanka.
Afgreiðsla á vörum
Eftir að viðskiptavinur hefur gert og gengið frá pöntun á active.is fær hann og active.is staðfestingu um pöntunina á tölvupósti. Hægt er að sækja pantanir hjá Gorilla House, Suðurlandsbraut 4, 108 Reykjavík alla virka daga frá 12:00 – 17:00. Venjulegur afhendingarferill á sendum pöntunum er 1-2 virkur dagur. Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Dedicated ehf ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Dedicated ehf til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Vöruskil
Almennur skilafrestur á vörum eru 14 dagar og er hægt að skila vörum gegn framvísun reiknings/pöntun. Almennur skilafrestur miðast við að varan sé óopnuð og í upprunalegum umbúðum. Ef ske kynni að varan sé gölluð greiðir active.is sendingarkostnaðinn sem fellur til við skil á vöru en annars er sendingarkostnaður á ábyrgð kaupanda. Útsöluvörum er ekki hægt að skila.
Persónuupplýsingar
Active.is afhendir hvorki persónuupplýsingar né netföng á þriðja aðila. Þau netföng sem skrá sig á póstlista active.is eru eingöngu notuð til að senda notendum upplýsingar um tilboð og upplýsingar um vörur og/eða viðburði.
Vinsamlegast athugið að allar upplýsingar og verð á vefnum eru birt með fyrirvara um breytingar, innsláttarvillur og myndabrengl.
Almennt um netverslunina
Öll verð í netversluninni eru með virðisaukaskatti. Active.is er rekið af Dedicated ehf, kt. 620103-3650 og er hægt að hafa samband í gegnum active@active.is.